Krónan

Það er eitt atriði sem mér finnst oft gleymast í umræðunni um það hvort við eigum að kasta krónunni eða ekki. Krónan er nefnilega eitt af sérkennum okkar lands og menningar. Ekki á ósvipaðann máta og tungumálið.

Einhverjir gætu líka haldið því fram að það væri hagkvæmara ef við hættum að tala íslensku og við færum öll að tala ensku. Viðskipti við útlönd myndu s.d. ganga betur.

Ég held samt að það væri vitleysa (þó það væri kannski hagkvæmara). Það er eins með krónuna. Evran er sennilega hagkvæmari, en við ættum ekki að kasta krónunni. Því krónan (eins og tungumálið) er eitt af því sem gerir okkur íslensk.

Það gerir evrann ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af þúsund ára sögu íslensku þjóðarinnar höfum við haft eigin gjaldmiðil í 126 ár, sem er mjög stuttur tími í samanburði við flest þau lönd sem kastað hafa sínum gjaldmiðli fyrir evruna. Afhverju ættum við að láta einhvern þjóðrembing koma í veg fyrir upptöku á öðrum gjaldmiðli sem mun að öllum líkindum bæta hag okkar? Gerir krónan okkur eitthvað íslenskari en þýska markið gerði Þjóðverja þýskari? Þetta eru einhver lélegustu rök fyrir því að halda krónunnu sem ég hef séð.

Ólafur (IP-tala skráð) 10.12.2011 kl. 02:36

2 Smámynd: Sigurgeir Þór

Þetta eiga nú ekki að vera tæmandi rök, bara innskot í umræðuna.

Sigurgeir Þór, 10.12.2011 kl. 16:50

3 identicon

Ólafur,

Þín rök eru það einnig.

http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/10/30/evran_daemd_til_ad_falla/

Eiríkur (IP-tala skráð) 12.12.2011 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og tíu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband