Áður fyrr fannst mér hálf tilgangslaust af fólki að kaupa mjög dýra bíla.
Venjulegir bílar eru orðnir það góðir í dag að maður fær ekki mjög mikið fyrir þann auka pening sem maður eyðir í dýrann bíl. Mér fannst þetta álíka gáfulegt og að kaupa sérstaklega dýrann gaffal, þegar sá venjulegi dugir all vel.
Svo fattaði ég þetta einn daginn.
Ég prófaði nefnilega að keyra Porsche jeppa. Ég hafði alltaf staðið í þeirri trú að þessi bíll væri hvorki fugl né fiskur. Bíllinn gæti ekki bæði verið jeppi og sportbíll. Það væri þversögn í sjálfu sér.
En ég átti ekki orð þegar ég prófaði bílinn. Það fyrsta sem maður tekur eftir þegar maður sest inn í bílinn er hversu vel er gengið frá öllu. Það sem er ekki klætt í leður er klætt í rússkinn. En það er bara byrjunin.
Það er erfitt að lýsa því hvernig það er að keyra bílinn. Maður skilur bara ekki hvernig svona stór og mikill hlutur getur verið svona snarpur. Það er engin bið eftir neinu. Það er eins og bíllinn viti það á undan þér hvað þú vilt að hann geri. Bíllinn er svo snarpur að maður fær það næstum á tilfinninguna að guð sé að ýta aftan á bílinn, þegar maður gefur honum inn.
Lögmál eðlisfræðinnar virðast ekki alveg eiga við.
Ég held að einu gallarnir við þennan bíl séu verðið (15-20 milljónir) og svo það að hann er ekki sérstaklega fallegur. En annað er það ekki.
Maður hefði haldið að útkoman væri leiðinleg þegar efnistökin eru það.
Svo er þó ekki í tilviki myndarinnar Moneyball. En hún fjallar um tölfræði og hafnabolta. Sennilega tvo af leiðinlegustu hlutum veraldar. Reyndar fjallar myndin um það hvernig tölfræðin heldur innreið sína í hafnaboltann og byltir bæði þeim þjálfunar- og stjórnunaraðferðum sem notaðar eru.
Þrátt fyrir að þetta sé bakgrunnur myndarinnar tekst framleiðendum hennar að gera gott úr hlutunum. Útkoman er mannleg, og nánast því falleg saga.
Ég mæli með Moneyball.
Stundum þegar maður kemur inn á veitingastað fer ekki á milli mála að þeir sem standa að staðnum vilja að staðurinn sé ekki of líkur öðrum. Að hann hafi sinn eigin persónuleika, ef svo má segja. Maður fær það á tilfinninguna að þetta hafi verið áætlunin þegar maður kemur inn á Roadhouse, sem er nýlegur veitingastaður við Snorrabraut.
Staðurinn á að hafa persónuleika, en útkoman er því miður persónuleikaröskun.
Það fyrsta sem maður tekur eftir er hvað það er mikill hávaði þarna inni. Staðurinn er allur frekar opinn og því berst allt hljóð, út um allt. En ég reyndi reyndar að láta það ekki trufla mig og hugsaði með mér að maturinn væri nú aðalatriðið. Ekki hávaðinn.
En því miður var maturinn ekki sérstaklega góður. Franskarnar voru reyndar í lagi en hamborgarinn sem ég fékk var ekki nægilega vel eldaður, og bara ekki girnilegur yfir höfuð. En ég fékk mér Roadhouse borgarann.
Ofan á allt annað, þá kom í ljós að verðlagið er í hærri kantinum. Það er erfitt að sætta sig við það, þegar staðurinn er slakur.
Ég veit ekki hvað maður getur sagt um bókina:
Leyndardómar Reykjavíkur 2000
Annað en það að þetta er einhver versti titill bókar sem um getur. Maður hefði haldið að þegar sex af helstu (spennusagna) höfundum Íslands koma saman og skrifa bók að þeir gætu látið sér detta eitthvað skárra í hug en einhvert svona kraðak. Þó er bókin sjálf ekki beint leiðinleg. En það vantar samt klárlega einhver neista í bókina. Hún verður aldrei spennandi eða skemmtileg.
Ég held reyndar að það sé ákveðin kúnst að nefna bækur. Nafnið verður nefnilega helst að tengjast bókinni á einhvern máta, eða efni hennar, eða endurspegla á hana á einhvern máta. Gott dæmi er nafnið:
Brakið
Nafn bókar Yrsu Sigurðardóttur tengist bókinni hennar á tvo mismunandi máta.
Annarsvegar á þann máta að í bókinni sjálfri þá flýtur skipsbrak inn í Reykavíkurhöfn, og það setur atburðarás bókarinnar af stað. En hinsvegar er það líka skemmtileg tilviljun að bókin er hrákasmíð, eða hálfgert brak í sjálfu sér.
Í því tilviki er nafnið einstaklega vel til fundið.
Ég hef aldrei skilið hversvegna talað er um að fólk sé miðaldra þegar það er 50-60 ára gamalt. Það er bara ekki rökrétt.
Það verða nefnilega mjög fáir 100-120 ára gamlir.
Íslendingar bera sig gjarnan saman við löndin í Skandinavíu. Það er kannski ekki svo skrítið þar sem rætur okkar liggja þar, að mestu leiti amk.
Upp á síðkastið hef ég sérstaklega orðið var við samanburð á lífskjörum á Íslandi og í Noregi (í fjölmiðlum). Talað er við fólk sem hefur flutt til Noregs og farið er yfir allskonar tölur. Niðurstaðan er undantekningalaust sú að lífskjörin séu mun betri hinum megin við hafið.
Mér finnst þetta ósanngjarnt.
Við getum nefnilega ekki dælt peningum upp úr jörðu (eða hafsbotni) eins og Norðmenn. Flest ríkustu lönd í heimi hafa nefnilega olíuiðnað sem við státum ekki af. Við getum ekki borið okkur saman við þessi lönd.
Það er líka vafasamt að ætla að bera sig saman við það besta sem gerist í heiminum. Ef maður ber sig saman við heimsmeistara í einhverju er auðvelt að komast að þeirri niðurstöðu að maður sé ekki nægilega góður.
Við erum nefnilega ekki í sérstaklega slæmum málum hvað þessi mál varðar.
Þegar allt kemur til alls erum við nefnilega á svipuðu reiki og hinar Norðurlandaþjóðirnar. Hinar, sem eiga ekki olíu.
Mér finnst að Wow flugfélagið hefðu mátt hugsa það aðeins betur að nota Top Gun þema í auglýsingaherferðinni sinni.
Myndin fjallar um flugmann sem á við tilfinningaleg vandamál að stríða í kjölfar þess að vinur hans deyr í flugslysi. Svo heitir þemalag myndarinnar:
Highway to the Dangerzone.
Ég hef sjaldan orðið var við jafn mikla eftirvæntingu á netinu og síðastliðna daga (og vikur). Apple var með kynningu í dag og tæknibloggin kepptust um að kynna spár sínar um hvað væri væntanlegt. Flestar reyndust spárnar reyndust réttar.
Það var nýr Ipad.
Það er ekki hægt að segja að nýji Ipad-inn sé einhver bylting. Hann er næstum því nákvæmlega eins og forverinn. Nema hvað að búið er að bæta einu loftneti við hann, hann er líka örlítið hraðvirkari, svo er skjárinn skarpari.
Ég tók sérstaklega eftir því að nafninu er ekki breytt. Nema hvað að þeir fella út III eða HD eða hverju svo sem því sem fylgir í kjölfar Ipad. Þetta er s.s. ekki Ipad III eða Ipad HD.
Bara Ipad.
Ég hallast að því að þetta sé vegna þess að Ipad-inn kemur sennilega ekki til með að breytast mikið á næstu árum. Næstu kynslóðir verða væntanlega mjög líkar þessari sem var kynnt til sögunnar í dag. Hver komandi kynslóð verður örlítið betri.
Ekki mikið meira en það.
Ég held að það verði aldrei aftur svona eftirvænting eftir næstu kynslóð Ipad.
Það er erfitt að mæla framfarir í listum.
Ég fer samt ekki ofan af því að það hafi átt sér framfarir á flestum sviðum lista á síðustu áratugum. Svo ekki sé talað um árhundruðin. Myndlistin er fjölbreyttari. Dansararnir eru betur á sig komnir. Ljósmyndararnir betri.
Dæmin eru mýmörg.
Það sama má reyndar segja um önnur svið mannlífsins. Hvort sem skoðum íþróttir, hönnun, samgöngur, fjölmiðlun eða hvað sem er. Alls staðar hafa átt sér stað miklar  framfarir.
Ég hallast að því að eina sviðið þar sem engar framfarir hafa átt sér stað í mjög langan tíma, sé í klassískskri tónlist. En það virðist sem ekkert markvert hafi gerst í klassískri tónlist síðan sautjánhundruð og eitthvað.
Mér finnst það fáránlegt.
Fyrir um einu og hálfu ári síðan fékk ég mér snjallsíma.
Ég byrjaði á því að fylla hann af forritum og bjóst einhvernmegin við því að ég myndi ekki sleppa hendinni af honum. Fyrst um sinn notaði ég hann og forritin á honum reyndar frekar mikið en svo fór að notkunin minnkaði smám saman.
Nú er svo komið að ég nota símann eiginlega bara sem síma.
Megnið af þeim forritum (eða öppum) sem til eru fyrir þessa síma alla hafa bara sama og ekkert notagildi fyrir mig. Eflaust finnst einhverjum þægilegt að geta skoðað facebook með símanum, en ég sé bara ekki þörfina.
Ég gæti alveg eins verið með facebook í tannburstanum.
Það er ekki hægt að segja margt gott um innrásina í Írak.
Forsendurnar voru þær að Saddam Hussein ætti gereyðingarvopn sem hann gæti komið í hendurnar á hryðjuverkamönnum. Þau reyndust ekki vera til staðar.
Afleiðingar stríðsins voru svo hörmulegar. Nokkur þúsund bandarískir hermenn féllu í valinn og (amk) tugir þúsunda allmennra borgara dóu (sem afleiðing hernámsins). Það verður að segjast eins og er að þetta er mikil fórn.
Þegar kemur að umræðunni um það hvort innrásin hafi verið réttlætanleg, er eitt atriði sem mér finnst gleymast. Þetta atriði er framtíðin.
Breytingarnar í Írösku þjóðfélagi eru nefnilega (væntanlega) varanlegar. Íbúar Írak koma nú til með að búa í samfélagi sem er stjórnað af jafnokum þeirra. Lýðræðislega kosnum fulltrúum.
Ekki einræðisherrum sem nota efnavopn á eigin þegna.
Berum þetta saman við ástandið í N-Kóreu. Það kemur nefnilega á daginn að maður kemur í manns stað. Þar tekur nú sonur Kim Jong Il við völdum. Eflaust kemur hann til með að reka landið í svipuðum anda og faðir sinn.
Ástandið þar er ömurlegt, og það verður sennilega ömurlegt til eilífðarnóns.
Sjálfur hallast ég að því að ekki sé hægt að segja með neinu viti hvort innrásin hafi verið heillaspor fyrr en eftir 50-100 ár.
Það verður forvitnilegt að bera saman ástandið í þessum löndum þá.
Tímalínan (Timeline) kallar fram dálítið blendnar tilfinningar hjá mér.
Tímalínan er nýjasta uppfærslan á Facebook samskiptavefnum. Hún felur það í sér að allt sem þú hefur sett inn á Facebook í gegnum tíðina verður sjáanlegt og er sett upp í tímaröð.
Mér finnst þetta alger snilld að því leiti að maður fær mun betri mynd af fólki (en í gömlu uppsetningunni). Breytingarnar fara heldur ekki illa í augað.
En þetta pirrar mig svakalega að því leiti að því leiti að það eru færslur sem ég hef sett inn á Facebook sem ég kæri mig ekkert endilega um að hver sem er geti skoðað.
Þetta gerir það að verkum að ég þarf núna að fara yfir allt sem ég hef sett þarna inn og ritskoða allt heila batteríið. En ég sé fyrir mér að það komi til með að taka allt of langann tíma. Heila eilífð.
Það hvarflaði jafnvel að mér að breyta Facebook nafninu mínu í Adolf Hitler, bara til þess að mér yrði hent út af vefnum (þar sem það er eiginlega ekki hægt að hætta þarna með því einfaldlega að loka aðgangnum). Vegna þess að ég er ekki að nenna að fara í gegnum allar þessar færslur.
Ég reyndar hætti við það vegna þess að Facebook hefur notagildi fyrir mig. Maður fær s.d. boð á ýmsa viðburði í gegnum Facebook sem maður myndi annars (mögulega) missa af.
Ætli maður eigi ekki eftir að enda á því að fara í gegnum allt draslið.
Því er ver og miður.
Það er eitt atriði sem mér finnst oft gleymast í umræðunni um það hvort við eigum að kasta krónunni eða ekki. Krónan er nefnilega eitt af sérkennum okkar lands og menningar. Ekki á ósvipaðann máta og tungumálið.
Einhverjir gætu líka haldið því fram að það væri hagkvæmara ef við hættum að tala íslensku og við færum öll að tala ensku. Viðskipti við útlönd myndu s.d. ganga betur.
Ég held samt að það væri vitleysa (þó það væri kannski hagkvæmara). Það er eins með krónuna. Evran er sennilega hagkvæmari, en við ættum ekki að kasta krónunni. Því krónan (eins og tungumálið) er eitt af því sem gerir okkur íslensk.
Það gerir evrann ekki.
Síðast þegar ég horfði á nútímadans hugsaði ég með mér:
Hérna er danshöfundurinn klárlega að takast á við fyrringu nútímamannsins í tæknivæddu samfélagi. Svo er ádeila á menningarlega afstæðishyggju þarna inn á milli líka.
Nei, ég lýg því. Ég hugsaði með mér:
Á maður að geta lesið eitthvað út úr þessu? Eða er þetta bara fallegt sprikl?
Málið er nefnilega að oftar en ekki segja dansararnir (þegar maður heyrir í þeim fyrir eða eftir dansinn) að dansinn eigi að tákna þetta eða hitt. En ég bara sé aldrei tengingarnar eða táknin í dansinum.
Er ég einn um það að eiga erfitt með að túlka nútímadans?
Hvað varð um Internetið?
Fyrir nokkru gat ég eytt ótrúlega miklum tíma á netinu. Mér fannst eins og ég hefði endalausa afþreygingu. Í dag verð ég einhvernmeginn uppiskroppa með efni til að skoða eftir smá stund. Ég skil þetta ekki alveg vegna þess að það eru mörg hundruð milljónir heimasíða á netinu. Ef að þeim gögnunum sem Internetið samanstendur af væri sett upp á bókarform og bókunum raðað upp. Þá myndu þær ná frá jörðu til Plútó og aftur til baka. Mörgum sinnum. Samt sem áður finn ég oftar en ekki nema nokkrar síður á netinu sem ég hef áhuga á að skoða.
Þetta eru aðallega fréttasíður sem tengjast því sem ég hef áhuga á. En það er bara svo mikið sem gerist á hverjum degi. Ég hef s.d. gaman af því að lesa um sund. En ekki einhver aldursflokkamót í Tulsa, Oklahoma. Ég hef s.s. gaman af því þegar það eru sett heimsmet, eða þegar eitthvað allmennilega markvert gerist. En eins og ég segi. Þá eru ekki sett heimsmet á hverjum degi.
Ég er farinn að hallast að því að það sem vanti sé ekki ný og betri tækni til þess að miðla upplýsingum (eins og Internetið). Það sem vantar er meiri og betri upplýsingar. Það vantar s.s. fleiri skemmtileg blogg, fleiri skemmtilegar bækur, fleiri skemmtilega sjónvarpsþætti. Fleiri skemmtilega leiki.
Mergur málsins er sennilega sá að Internetið er hafsjór upplýsinga. En megnið af þessum upplýsingum er drasl.
Við þurfum minna magn, en meiri gæði.